tisdag, juni 16, 2009

lördag, maj 31, 2008

onsdag, juli 25, 2007

River Rafting og Gervigreind

Svaka stuð um síðustu helgi þar sem við brunuðum niður Jökulsánna á fleygi ferð með tilheyrandi veltu, stökkum af klettum, full löngum sundsprettum, pústrum, árásum, kaffæringum og fleira... Allir lifðu þó af en enginn kom sko þurr heim. Því fylgdi að sjálfsögðu frisbííí fyllerí á tjaldsvæðinu á eftir.

Aðalfréttin í dag er þó um gervigreind. (A.I. en ekki myndina þó). Hann Hilmar er núna í þessum skrifuðum orðum í Kanada þar sem hann var að ljúka keppni (ja, gervigreindin hans) í "heimsmeistarakeppninni" í gervigreind en þar voru hann og Yngvi (félagi hans í glæpum) í úrslitum á móti UCLA sem er nú ekki lítill skóli (unnu fyrstu keppnina og í öðru í fyrra en þetta er þriðja árið sem hún er haldin) og þeir UNNU!!!

Kannski aðeins stutt um hvað keppnin er um:

Þeir félagar gerðu forrit sem er með greind, einsskonar gervigreind. Síðan spila gervigreindirnar við hverja aðra og fá ekki að vita fyrirfram hvaða leikur mun verða spilaður svo gervigreindin verður bara að gjöru svo vel og læra á leikinn, gæti verið tafl, lúdó, backgammon eða hvað sem er... Síðan spila þau bara til sigurs og "liðin" (t.d. Hilmar og Yngvi) verða bara að sitja og horfa á litlu "börnin" sín annað hvort gera mistök eða standa sig vel!

Hér er frétt á MBL.IS um þetta.
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1281728

Og að lokum, þá á Steindi afmæli í dag!!!

torsdag, juli 05, 2007

Ég á afmæli í dag! (og Gummi náttúrulega)

Mikið búið að gerast síðan síðasta blogg...

Fyllerísboltinn var og hann toppaði held ég vel alla hina sem verið hafa, við vorum strumpar á móti djöflum í gúmmítúttum!

Bæði lið með frábæra búninga, sól og blíða! Myndir eru hjá Valdimar (man bara ekki slóðina þangað).

Fórum til Danmörku (ég, Gummi, Sigga og Daði) og fórum á Damien Rice sem kom vel á óvart og hélt mjög góða tónleika (hafði sína galla en það er óþarfi að minnast eitthvað á það). Fórum svo á Pearl Jam... set inn myndir við tækifæri inn í þetta blogg.

GEÐVEIKIR TÓNLEIKAR!!!

EDDIEEEEEE!!!!!!!

Eirini hitti okkur í Danmörku og er nú komin til landsins og búum við í Hafnarfirðinum frábæra hjá Hreiðari ásamt Valdimar.

Þetta var nú bara stutt og laggott en hafið í huga að það eiga eftir að koma inn myndir.

ps. lagið Even Flow með þeim félögum í Pearl Jam verður í næsta gítarheró leik!!! (Guitar Hero III)

torsdag, juni 14, 2007

Fyllerísfótboltinn 2005! (eitthvað minna af fótbolta)



Þið sem voruð þarna, ekki gleyma að kommenta!

lördag, juni 09, 2007

tisdag, juni 05, 2007

Sigurvegarinn í að sparka Gumma, ég!!!

Fór norður nú um helgina á nýja bílnum mínum, Ford Focus, og hann er að svínvirka.

Hjólastólatríóið!